Lífræn vottun

Vottað lífrænt

ATHUGIÐ AÐ ÞESSI SÍÐA ER ENN Í SMÍÐUM. FREKARI UPPLÝSINGAR og LEIÐBEININGAR MUNU BÆTAST VIÐ FLJÓTLEGA.

Lífrænar afurðir eru þær sem hafa verið framleiddar samkvæmd samþykktum skilgreiningum um lífræna ræktun. Reglugerðir Evrópusambandsins um lífræna ræktun ná til plöntu og dýraafurða, unnum sem óunnum sem ætlaðar eru til manneldis eða sem dýrafóður. Ísland tekur upp reglugerðirnar um lífræna vottun eins og svo margar í gegnum EFTA sem þýðir að ef vara fellur undir umfang reglugerðanna er nauðsynlegt að fylgja þeim til að mega merka hana eða kynna sem lífræna.

Ekki fellur allt undir reglugerðina, til að mynda snyrtivörur og matreiðsla, og hefur Tún í samráði við innlenda og erlenda sérfræðinga viðhaldið reglum um framleiðslu lífrænna afurða og þjónustu utan reglugerða. Sumar vörur hljóta með því heimild til að vera notaðar sem innihald í lífrænar afurðir innan reglugerða.

Náttúruafurðir eru annar flokkur vottunar sjálfbærra afurða en þar á meðal er t.d. dúnn og fiskimjöl þar sem heilnæmi og sjálfbærni í takt við kröfur lífrænnar vottunar eru grunnurinn að kröfum til vottunarhafa. Sumar vörur hljóta með því heimild til að vera notaðar sem innihald í lífrænar afurðir innan reglugerða.

Evrópuráðið heldur úti síðu með miklu magni upplýsinga um lífræna vottun og uppfærir skjal með algengum spurningum framleiðenda og neytenda.

Síða Evrópuráðsins um lífræna vottun
Skjal Evrópuráðsins með algengum spurningnum um lífræna vottun

Vottunarferlið

Umsóknarferli

  1. Umsækjandi smellir á græna hnappinn efst í hægra horni síðunnar eða hefur samband við okkur hjá Túni í gegnum organic@tun.is

  2. Tún sendir umsóknargögn til umsækjanda.

  3. Umsækjandi sendir inn vel útfyllt umsóknargögn til Túns.

Úttektarferli

  1. Matsmaður Túns fer yfir umsóknargögn.

  2. Matsmaður Túns og tengiliður umsækjanda ákveða tímasetningu úttektar.

  3. Umsækjandi fær vettvangsúttekt frá matsmanni Túns.

Gjaldskrá Lífrænnar vottunar á Íslandi

Ákvörðun / Vottun

  1. Umsóknin og matsskýrsla er lögð fyrir vottunarnefnd lífrænnar vottunar og náttúruafurða hjá Túni til ákvörðunar.

  2. Ef umsókn er samþykkt fær umsækjandi vottorð.

Lög og reglugerðir um lífræna vottun

Evrópulöggjöf um lífræna framleiðslu
Lög um matvæli 93/1995
Innleiðingarreglugerð 205/2023
Grunngerð EU 2018/848
Um undanþágur EU 2020/2146
Aðlögun, afturvirkni og aðbúnaður EU 2020/464
Leyfileg efni EU 2021/1165
Eftirlit, eftirfylgni og merkingar EU 2021/279
Skriflegt bókhald og eftirlit EU 2021/779

Reglur um notkun vottunarmerkja

Vottunarmerki eru hluti af verðmætum vottunarkerfa og eru í eign eigenda kerfanna. Það er mikilvægt fyrir ímynd kerfanna að samræmd notkun sé meðal þátttakenda kerfanna og að fjölmiðlar og aðrir sem sinna umfjöllun um kerfin virði birtingareglurnar. Notkun merkja lífrænnar vottunar til markaðssetningar á Íslandi er háð skriflegu leyfi Vottunarstofunnar Túns.

Þeir sem ekki hafa staðist úttekt og vottun mega ekki bera vottunarmerki viðkomandi kerfis og eru afleiðingar af slíku misalvarlegar. Hér að neðan er að finna reglur um birtingu vottunarmerkja fyrir lífræna framleiðslu á Íslandi.

Evrópulaufið

Evrópusambandið hefur gefið út leiðbeiningarit um meðferð vottunarmerkisins á lífrænni framleiðslu sem fellur undir reglugerðir þess. Framleiðslu sem vottuð er innan reglugerða Evrópusambandsins er skylt að auðkenna sig með Evrópulaufinu sé varan markaðssett sem lífrænt vottuð. Vottunarhafar þurfa að kynna sér ritið og fylgja leiðbeiningum þess við vörumerkingu og almenna markaðssetningu. Auk þess bendum við fjölmiðlum og öðrum sem kunna að birta merkið sem hluta af umfjöllun eða kynningu að fylgja leiðbeiningunum og stuðla að réttri birtingu þess.

Leiðbeiningar um notkun Evrópulaufsins
Sækja myndskrár Evrópulaufsins

Vottunarmerki Túns

Frá því fyrir tíma Evrópulaufsins hefur merki Túns um lífræna vottun og náttúruafurðir auðkennt slíkar vörur hér á landi. Framleiðslu sem vottuð er innan reglugerða Evrópusambandsins er heimilt að nota einnig merki Túns og mælum við með því til að auðkenna betur íslenska framleiðslu. Framleiðslu sem vottuð er lífræn utan reglugerðanna, til að mynda snyrtivörur, og náttúruafurða er skylt að auðkenna sig með merkjunum sé varan markaðssett sem vottuð samkvæmt kröfum Túns. Í leiðbeiningariti um kröfur til lífrænnar vottunar og náttúruafurða sem Tún hefur gefið út í fjölda ára koma fram leiðbeiningar um notkun og birtingu vottunarmerkja Túns. Vottunarhafar þurfa að kynna sér ritið og fylgja leiðbeiningum þess við vörumerkingu og almenna markaðssetningu. Auk þess bendum við fjölmiðlum og öðrum sem kunna að birta merkið sem hluta af umfjöllun eða kynningu að fylgja leiðbeiningunum og stuðla að réttri birtingu þess.

Leiðbeiningar um notkun vottunarmerkja Túns