Vottunarskrá – Listi yfir vottaða framleiðendur lífrænna afurða og náttúruafurða/aðfanga
Vottunarstofan Tún heldur skrá um vottaða framleiðendur lífrænna afurða og náttúruafurða/aðfanga. Vottunarskrá er uppfærð jafnóðum og breytingar verða, þ.e. ef nýjir framleiðendur bætast í hóp vottunarhafa eða ef einhver vottunarhafi er tekinn af skrá um vottaða aðila.
Vottunarskrá Túns er í fjórum hlutum (sjá nýjustu uppfærslur á pdf-skjölum fyrir neðan):
Vottunarskrá frumframleiðslu: Framleiðslueiningar í landnýtingu, jarðyrkju, matjurtarækt, búfjárrækt, fiskeldi og söfnun villtra plantna.
Vottunarskrá vinnslustöðva: Vinnslustöðvar sem vinna úr lífrænum hráefnum, pakka, endurpakka, endurmerkja og flytja inn lífrænar vörur.
Vottunarskrá starfsstöðva sem stunda lífræna framleiðsu utan ramma íslenskra og evrópskra reglugerða: Framleiðslueiningar í matreiðslu og snyrtivörugerð, og starfsstöðvar í Færeyjum.
Vottunarskrá náttúruafurða og aðfanga: Söfnunar- og vinnslustöðvar afurða sem ekki teljast lífrænar en byggja á sjálfbærum náttúrunytjum og eru leyfileg aðföng í lífrænni framleiðslu.